Skip to content
Home arrow Riding Training arrow Riding for Disabled
Reišžjįlfun fatlašra PDF Print E-mail
mįnudagur, 23 jślķ 2007

Reiðþjálfun fatlaðra er þjálfunaraðferð sem notuð hefur verið víða um heim á undanförnum árum með athyglisverðum árangri. Undanfarin ár hefur reiðþjálfun verið starfrækt í Saltvík. Þjálfarar með margvíslega menntun að baki hafa komið að henni svo sem sjúkraþjálfarar, þroskaþjálfi, iðjuþjálfi og íþróttakennari.

Þjálfunin gengur í stórum dráttum út á að nýta sér hreyfingar hestsins til að þjálfa upp vöðva og auka jafnvægi og samhæfingu líkamans.

Í reiðþjálfuninni er unnið með sameiningu skynsviða, líkamshreyfingu og málþroska á lifandi hátt. Hreyfingar hestsins örva og bæta líkamsvitund og stuðla þannig að bættri sjálfsmynd og auknu sjálfstrausti. Stór hluti af þjálfuninni er einnig samskiptin og nálægðin við hestinn.

Það er spennandi og skapar tilhlökkun að takast á við hestamennskuna og er sá þáttur auðvitað mjög mikilvægur líka þegar litið er til gildis sérstakra þjáfunaraðferða líkt og reiðþjálfun er.

Þegar best tekst til sameinar reiðþjálfun, góða og uppbyggjandi þjálfun fyrir líkama og sál, spennandi og skemmtilega upplifun og persónulega sigra auk þess að gefa þegar veður leyfir möguleika á hollri útivist jafnvel með allri fjölskyldunni!

Last Updated ( laugardagur, 25 aprķl 2009 )
 
< Prev   Next >
 
http://www.saltvik.is