Á vorönn ætlum við að halda áfram á svipuðum nótum og verið hefur í reiðskólanum auk þess sem nýjar áherslur koma fyrir þá sem lengst eru komnir. Hóparnir verða settir saman með það í huga að allir hafi félagsskap og hesta við hæfi, Við verðum með hóp fyrir byrjendur og einnig hópa sem við köllum “framhald” en það eru krakkar sem hafa verið áður hjá okkur eða hafa einhverja reynslu annarsstaðar frá.
Hver hópur er einu sinni í viku 2 klst í senn. Tímarnir byggjast upp á ýmsum þeim fjölbreyttu “verkefnum” sem eiga sér stað í samskiptum manns og hests, Þ.e við stefnum að því að nemendur verði sem mest sjálfbjarga í samskiptum sínum við hestinn. þau geti beislað og lagt á hestinn, , kembt og strokið og teymt hann óhrædd sér við hlið. Við æfum og lærum stjórnun og ábendingar inni í reiðskemmunni okkar auk ýmissra jafnvægisæfinga og leikja og þegar veður leyfir förum við í útreiðartúra og njótum þess að vera úti í náttúrunni með hestunum . Ýmislegt fræðsluefni er einnig í smíðum þannig að nemendur munu hafa með sér heimaverkefni um eitt og annað sem viðkemur hestinum og reiðmennskunni.
Síðastliðið vor endaði vorönnin á ferð í Skagafjörðinn þar sem sýningin “Æskan og hesturinn” fór fram í reiðhöllinni á Sauðárkróki. Við stefnum á að endurtaka þá ferð í vor og ef vel gengur við æfingar að fara með vaska sveit knapa og hesta til sýningar á afrakstri vetrarstarfsins okkar í Saltvík.
Í Saltvík er nú komin fyrsta flokks aðstaða til reiðskólastarfsins, auk reiðskemmunnar er rúmgóð og upphituð kaffistofa, snyrting og búningsaðstaða þar sem hægt er að geyma t.d hlífðarföt milli æfinga. Ef vandræði eru með akstur til og frá Saltvík þá leysum við það, foreldrar hafa t.d. skipst á að skutla og sækja börnin eftir hentugleika.
Verð á námskeiðin er : full vorönn ( janúar til maí) 16.000 kr./ hálf önn 12 tímar 9000kr.
Veittur er systkinaafsláttur 25%
Hægt er að skrá í síma 8924645(Bjarni) eða 8642062 (Elsa) eða á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það